0 stk. í Samtals 0 kr.

Algengar spurningar

  • Hvað er loftræktun?
  • Hversu stór er loftgarðurinn?
  • Hvað er í kassanum?
  • Hvað lifa plönturnar lengi?
  • Hvað tekur umhirðan langan tíma?
  • Hvað get ég skilið loftgarðinn eftir lengi án eftirlits?
  • Hvenær fer ég að fá uppskeru?
  • Eru næringartöflurnar lífrænar?
  • Get ég blandað saman fræjum?
  • Hvenær koma fleiri tegundir af fræjum?
  • Hvað notar loftgarðurinn mikið rafmagn?
  • Hvernig ljósaperur eru í loftgarðinum?
  • Hvar get ég keypt loftgarð?

 Hvað er loftræktun?
Loftræktun er ræktunaraðferð án moldar þar sem rætur plöntunar hanga í lausu lofti í umhverfi sem er mjög ríkt af raka og súrefni.  Ræturnar fá nákvæmlega rétt magn af næringu, vatni og súrefni og vaxa því mun hraðar en plöntur í jarðvegi.  Plönturnar eru auk þess heilbrigðari og innihalda meira magn næringarefna.
                                                                             til baka

 Hversu stór er loftgarðurinn? 
Loftgarðurinn tekur álíka mikið borðpláss og brauðbox og passar undir flesta efri skápa.  Lengd botnstykkisins er 40cm en lampans 47cm.  Breiðast er tækið um 38cm en hæðin breytileg, minnst 38cm með lampann í lægstu stöðu en upp í 52cm þegar lampinn hefur verið færður upp í efstu stöðu.  Loftgarðurinn fæst enn sem komið er eingöngu í þessari einu stærð.
                                                                             til baka

 Hvað er í kassanum?
Allt sem þú þarft til að byrja ræktun:

1. Innbyggð ljós fyrir plönturnar
- Ljósakerfi sem skaffa plöntunum allt það ljós sem þær þurfa

2. Loftræktunarklefi
- Skaffar plöntunum ræktunarskilyrði sem líkust regnskógum

3. Tölvustýrð ræktun
- Innbyggður örgjörvi sem stillir næringu, ljósmagn og vatn m.v. plöntutegund
- Sjálfvirk ljósastýring
- Sjálfvirk ámynning þegar bæta þarf við vatni eða næringartöflum.

A. Fræhylki
- Fræ í sínum eigin "gróðurhúsum" sem tryggja fljóta spírun.

B. Næringartöflur
- Töflur sem innihalda öll næringarefni sem plönturnar þarfnast.

C. Leiðbeiningar
- Bók sem inniheldur leiðbeiningar um hvernig hirða á um garðinn og ná fram hámarks uppskeru.  Inniheldur einnig ýmsar uppskriftir og skemmtileg ráð. 
                                                                             til baka

 Hvað lifa plönturnar lengi?
Kirsuberjatómatar og chilli vaxa í 6 mánuði og hægt er að hefja uppskeru á þeim eftir um 10 vikur.  Þetta gefur því 4 mánuði af stanslausri uppskeru.

Salat vex í 3-4 mánuði og hægt er að hefja uppskeru eftir eingöngu 3-4 vikur.  Það gefur því um 3 mánaða uppskerutíma.
                                                                             til baka

 Hvað tekur umhirðan langan tíma? 
Þó að allar frætegundirnar séu mjög auðveldar í ræktun þurfa sumar tendundir meiri aðhlynningu en aðrar.  Salat er auðveldast í umhyrðu og má gera ráð fyrir að nota í það um 5 mínútur á mánuði.  Aðrar tegundir útheimta frá 2-5 mínútum á viku í umhyrðu.
                                                                             til baka

 Hvað get ég skilið loftgarðinn eftir lengi án eftirlits?
Loftgarð sem hefur nýlega verið gangsettur er hægt að skilja eftir án eftirlits í allt að 2 vikur, eftir plöntutegund.
Í garða sem eru lengra getur þurft að bæta vatni oftar.
                                                                             til baka

 Hvenær fer ég að fá uppskeru? 
Uppskerutími er mismunandi eftir fræjum.  Búast má við að hæst sé að byrja uppskeru á salati og basil eftir 3-4 vikur.  Fyrir aðrar kryddjurtir má gera ráð fyrir uppskerutíma eftir um 5 vikur.  Uppskera á tómötum og chilli getur hafist eftir 10-12 vikur. 
                                                                             til baka

 Eru næringartöflurnar lífrænar?
Næringatöflurnar sem notaðar eru í loftgarðinum eru náttúrulegar (organic-based) samkvæmt stöðlum AAPFCO (American Association of Plant Food Control Officials).
                                                                             til baka

 Get ég blandað saman fræjum?
Já, en mælt er með því fyrst og fremst fyrir reynda ræktendur.  Þrjár skýringar eru á þessu:

1. Vegna þess að plöntur vaxa mis hratt og hafa mis stór laufblöð.  Hraðvaxandi plöntur gætu vaxið öðrum yfir höfuð og komið í veg fyrir að þær fái nauðsynlega birtu.

2. Næringartöflurnar eru hannaðar fyrir þann hóp plantna sem er í hverjum fræpakka.  Ef fræjum úr mismunandi pökkum er blandað saman getur það þýtt að þær fái of mikla eða of litla næringu.

3. Loftgarðurinn hefur innbyggðar mismunandi ljósastillingar fyrir fræpakka.  Ef fræjum er blandað saman úr mismunandi pökkum er hætta á því að plönturnar fái of lítið eða of mikið ljós.
                                                                             til baka

 Hvenær koma fleiri tegundir af fræjum?
AeroGrow bæta við nýjum fræjum oft og reglulega.  Við munum reyna að koma þeim á íslenskan markað um leið og mögulegt er.
                                                                             til baka

 Hvað notar loftgarðurinn mikið rafmagn?
Loftgarðurinn er hannaður til að nýta orku sem allra best og notar í heild minna rafmagn en ein 60 watta ljósapera.
                                                                             til baka

 Hvernig ljósaperur eru í loftgarðinum?
Í loftgarðinn eru notaðar litlar flúor perur sem gefa allt litróf dagsbirtunnar og eru hannaðar til að gefa plöntum allt það ljós sem þær þurfa til að vaxa og dafna.
                                                                             til baka

 Hvar get ég keypt loftgarð? 
Söluaðilar á loftgörðum eru: 
- Verslanir Blómavals um land allt, www.blomaval.is
- DUKA, Kringlunni, Reykjavík, www.duka.is
- Innigarðar, Dalvegi 16c, Kópavogi, www.innigardar.is
- Kokka, Laugavegi 47, Reykjavík, www.kokka.is
- Pottar og prik, Glerártorgi, Akureyri, www.pottarogprik.is
                                                                             til baka

 
© Lifa ehf. 2007. All rights reserved. | sími 511 0909 | info@aerogarden.is 
Vefverslun | Póstlistinn - skráðu þig!